Áframhaldandi umhleypingar

Miklar umhleypingar hafa verið í veðri undanfarið og ekki útlit fyrir breytingu á næstunni þar á. Í dag verður suðaustan 5-10 m/s og léttskýjað, en 10-15 og fer að snjóa síðdegis og slydda í kvöld. Suðaustan 8-13 og rigning á morgun. Hægt hlýnandi veður og hiti 1 til 6 stig á morgun.

Mikil hálka er í Húnavatnssýslum. Krap og snjór er á Þverárfelli, Heggstaðanesi og í Vatnsdal, Reykja- og Svínvetningabraut, Langadal, Blöndudal og Svartárdal. Þæfingur er á vestanverðum Skaga en ófært austanmegin.

Mikil hálka er einnig í Skagafirði en þæfingur á Reykjastrandarvegi og í Sæmundarhlíð. Krap og snjór er í Blönduhlíð.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:
Suðaustan 8-13 m/s og súld eða rigning, en úrkomulítið NA-lands. Hvassara og talsverð rigning S- og V-lands um kvöldið. Hiti 3 til 10 stig.

Á sunnudag:
Suðvestan 10-15 m/s og rigning fram eftir degi SA-lands, annars skúrir eða él, einkum V-lands. Kólnandi veður.

Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu S-til um kvöldið, en sums staðar snjókomu fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost N-til.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir suðlægar áttir með skúrum eð éljum, einkum S- og V-lands. Hiti nálægt frostmarki.

Fleiri fréttir