Afstaða til sameiningar sveitarfélaganna könnuð
Síðastliðna helgi fór fram 19. ársþing Samtaka sveitarfélaga í Norðurlandi vestra. Þingið ávörpuðu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
Fram kemur á vefsíðu Innanríkisráðuneytisins að umfjöllunarefni ársþingsins voru meðal annars efling sveitarstjórnarstigsins, sóknaráætlun landshluta, almenningssamgöngur og verðmætasköpun á landsbyggðinni.
Í ávarpi innanríkisráðherra kom fram að til stendur að kanna viðhorf sveitarstjórnarmanna og þingmanna til sameiningar sveitarfélaga en slík könnun fór einnig fram árið 2006. Mun það vera Jöfnunasjóður sveitarfélaganna sem kostar könnunina. Ráðherra sagði könnunina mikilvæga bæði til að fá fram viðhorf sveitarstjórnarmanna í kjölfar síðustu kosninga og ekki síður til að örva umræðu.
Innanríkisráðherra talaði einnig um erfiða fjárhagsstaðu sveitarfélagana og að það hefði verið eitt umfangsmesta og erfiðasta verkefni sveitarstjórnarmanna og ríkisvaldsins síðustu árin. Minnkandi tekjum og vaxandi kostnaði yrði að mæta með niðurskurði, eða jafnvel hækkun gjalda. Nýir kjarasamningar hjá ríki og sveitarfélögum síðustu misseri hafi aukinn kostnað í för með sér og að sveitarfélög verði mögulega að mæta þeim kostnaði að einhverju leyti með uppsögnum.
Innanríkissráðherra greindi einnig frá því að Vegagerðin og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga skrifuðu nýlega undir samning um að samtökin tækju að sér að skipuleggja og tryggja almenningssamgöngur á sínu svæði. Þeir myndu jafnframt úthluta því fjármagni sem þeim væri ætlað. Sagði ráðherra þesskonar fyrirkomulag, þar sem heimamenn tækju að sér ábyrgð á málaflokknum, til þess fallið að nýta betur fjármuni. Dæmi um það væri að samhæfa almenningssamgöngur við akstur með skólabörn og þjónustu við fatlaða. Sagði ráðherra fleiri slíka samninga við landshlutasamtök í bígerð.
Loks minntist innanríkisráðherra á vegaframkvæmdir sem hann sagði ekki miklar í þessum landshluta. Sagði hann í því sambandi brýnt að hlusta á vilja heimamanna þegar vegaframkvæmdir væru annars vegar á um leið og tekið væri tillit til umhverfissjónarmiða svo og fjárráða ríkissjóðs. Þá sagðist hann ætla að hlusta á sjónarmið íbúa Blönduóss varðandi hugmyndir um styttingu Hringvegarins við Svínavatn sem þýddi að hann lægi ekki um Blönduós.