Ágæt mæting í FNV í morgun
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
07.04.2014
kl. 15.04
Kennsla hófst í FNV í morgun að afloknu þriggja vikna verkfalli framhaldsskólakennara. Að sögn Ingileifar Oddsdóttur skólameistara var mæting með ágætum í morgun.
„Það er erfitt að sjá strax hvernig stemmingin er meðal nemenda, en ég held að ástandið sé alveg ágætt. Dreifnámsnemendur koma í kvöld og verða út vikuna. Vonandi erum við ekki að sjá fram á aukið brottfall, höfum í það minnsta ekki vísbendingar um það,“ sagði Ingileif þegar blaðamaður hafði samband við hana fyrr í dag.