Áheyrnarprufur fyrir Ísland got talent

Stærsta hæfileikakeppni heims teygir nú anga sína til Íslands og verða fulltrúar hennar á Sauðárkróki á laugardaginn í leit að hæfileikaríku fólki. Áheyrnarprufur fara fram í Húsi frítímans á Sauðárkróki laugardaginn 5. október og hefjast kl. 15.

Þættirnir verða sýndir á Stöð 2 og er Sauðkrækingurinn Auðunn Blöndal kynnir þáttarins.  Leitað er að fólki á öllum aldri til að taka þátt í “Ísland Got Talent” og verðlaunin fyrir siguratriðið 10 milljónir króna.

Dómarar þáttarins eru Bubbi Morthens, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Jón Jónsson og Þórunn Antonía Magnúsdóttir.

Fleiri fréttir