Áhrif menntastofnana mjög sýnileg
Niðurstöður þarfagreiningar um námsframboð á Norðurlandi vestra liggja nú fyrir. Þarfagreiningin er verkefni Þekkingarsetursins í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra en rannsóknin var unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Í upphafi var Gunnar Tryggvi Halldórsson verkefnisstjóri á vegum Þekkingarsetursins en síðan tók Ásdís Ýr Arnardóttir við keflinu. Verkefnið hlaut styrk frá SSNV og vinnumarkaðsráði NV.
Um er að ræða sérstaklega viðamikla rannsókn. Búin var til spurningarlisti, myndaðir voru rýnihópar og tekið var úrtak tæplega 1300 manna á svæðinu nú í haust en svarhlutfall var um 60%. Niðurstöður eru settar fram fyrir Húnaþing vestra, A-Hún og Skagafjörð.
Sérstaklega áhugavert er að skoða hversu ólíkar þarfir eru á námsframboði á svæðinu sem og viðhorf fólks til náms. Áhrif þeirra menntastofana sem eru á hverju svæði sjást vel, menntunarþörf í Skagafirði er til að mynda önnur en þörf á námsframboði í A-Hún.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar með hagsmunaaðilum á svæðinu um miðjan janúar með það að markmiði að skoða leiðir til úrbóta.
Þekkingarsetrið leggur mikla áherslu á að þarfagreiningin nýtist sem tæki til eflingar menntunar á svæðinu, en heimasíða setursins er: www.tsb.is