Áhyggjur af skólalóð Blönduskóla

Foreldrafélag Blönduskóla hefur áhyggjur af skólalóð Blönduskóla þar sem frágangur á henni getur ekki talist fullnægjandi, þetta kemur fram í erindi sem barst bæjaryfirvöldum á Blönduósi og var málefnið tekið til umræðu á síðasta fundi bæjarstjórnar þann 24. maí sl.

„Því er beint til bæjaryfirvalda að ljúka framkvæmdum sem fyrst, í síðasta lagi áður en nemendur mæta til skóla næstkomandi haust,“ segir í bréfinu sem dagsett er 14. maí 2012.

Bæjarráð hefur falið tæknideild að lagfæra þau atriði sem börnum stafar hætta af hið fyrsta og að tryggt sé að sveitarfélagið uppfylli gildandi lög og reglur um öryggi á skólalóð, segir í bókun fundargerðar. Tæknideild mun vinna að málefnum skólalóðar, með hliðsjón af erindi foreldrafélags Blönduskóla í samráði við skólayfirvöld.

Fleiri fréttir