Ak Extreme í beinni á N4

Snjóbretta og tónlistarhátíðin Ak Extreme verður haldin dagana 12.-15. apríl á Akureyri en þar munu bestu snjóbrettamenn landsins sýna listir sínar og vinsælir tónlistarmenn troða upp á Græna Hattinum, Pósthúsbarnum og á Kaffi Akureyri. „Eimskips Big Jump“ - keppnin á Ak Extreme verður í beinni útsendingu á N4 – sjónvarpi og á netinu (www.n4.is) laugardagskvöldið 13. apríl kl:20-23.

 „Eimskips Big Jump“ keppnin er einn hápunktur hátíðarinnar, 16 keppendum er boðin þátttaka og er búist við harðri keppni þar sem barist er um AK Extreme gullhringinn. Í fyrra mættu um 7000 manns í gilið til að horfa á keppnina sem nú verður sýnd í beinni útsendingu á N4 sjónvarpi og streymt beint á netið (www.n4.is). Það þarf því enginn að missa af þessum einstaka viðburði í ár

Fleiri fréttir