Akureyrarbær vill fund um Svínavatnsleið
Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur falið bæjarstjóra að óska eftir fundi með bæjarstjóra Blönduósbæjar og sveitarstjóra Húnavatnshrepps til þess að ræða mismunandi hagsmuni sveitarfélaganna varðandi styttingu hringvegarins með hinni svokölluðu Svínavatnsleið/Húnavallaleið.
Í fundargerð bæjarráðs Akureyrarbæjar frá 10. mars síðastliðnum kemur fram að fulltrúar L-lista og D-lista fóru á fund umhverfisráðherra 8. mars síðastliðinn. Tilgangur fundarins var að koma sjónarmiðum Akureyrarbæjar á framfæri varðandi styttingu leiðarinnar á milli Akureyrar og Reykjavíkur, en umhverfisráðherra á eftir að úrskurða um málið. Rætt var um umhverfislegan ávinning sem og fjárhagslegan ávinning íbúa Akureyrar í formi flutningskostnaðar, en ekki hvað síst um umferðaröryggi á umræddum köflum leiðarinnar, að því er fram kemur í fundargerðinni.
/Húni.is