Ákveðið að auglýsa eftir náms- og starfsráðgjafa

Aðalfundur Farskólans var haldinn í lok síðustu viku. Ný stjórn var kosin til tveggja ára. Á fundinum var einnig ákveðið að auglýsa eftir menntuðum náms- og starfsráðgjafa til Farskólans og er um tilraunaverkefni til tveggja ára að ræða.

Aðalmenn em kosnir voru í stjórn eru: Ásgerður Pálsdóttir, Guðrún Sighvatsdóttir, Ingileif Oddsdóttir, Arnþrúður Heimisdóttir og Erla Örnólfsdóttir. Ársskýrsla og ársreikningur verða birt á heimasíðu Farskólans.

Fleiri fréttir