Albert Óli Þorleifsson sigraði í Blönduvision

Árleg árshátíð Blönduskóla fór fram á föstudaginn að viðstöddu fjölmenni þar sem ýmislegt var til skemmtunar. Sagt var frá mörgum skemmtilegum og forvitnilegum uppákomum í vetur,  nemendur unglingadeildar sýndu leikritið „Iris“ í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur en mikill boðskapur er í verkinu og komst hann ágætlega til skila hjá krökkunum.

Eftir leikritið voru glæsilegar kaffiveitingar í boði áður en komið var að hinni árlegu og frábæru söngvarakeppni „Blönduvision“ en þar stigu fjórir keppendur á svið, þau Albert Óli Þorleifsson, Arinbjörn Fossdal, Árný Dögg Kristjánsdóttir og Íris Emma Heiðarsdóttir. Eftir flutning þeirra og áður en dómnefnd tilkynnti úrslitin flutti hljómsveit 8unda bekkjar eitt lag en í hljómsveitinni voru 9 nemendur sem spiluðu og sungu en restin af bekknum eða hinir 9 tóku undir í viðlaginu. Styst er frá því að segja að Albert Óli Þorleifsson er sigurvegari Blönduvision 2011.

Eftir að úrslitin voru ljós skemmti flottur plötusnúður „DJ Doddi Mix“ krökkunum og spilaði fyrir dansi.

/Húni.is

Fleiri fréttir