Aldrei gefast upp verður Battleline í kvöld

Úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins fer fram í Laugardalshöllinni í kvöld og kemur þá í ljós hverjir verða fulltrúar Íslands í Júróvisjón í Lissabon í Portúgal. Þar munu Íslendingar keppa í undankeppninni þann 8. maí en aðalkvöld Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva verður svo laugardaginn 12. maí nk.
Fyrstir til að stíga á svið í úrslitakeppninni á laugardaginn er Fókushópurinn en í honum eru tveir Húnvetningar eins og Feykir hefur áður fjallað um, þau Sigurjón Örn Böðvarsson og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir. Þau hafa ákveðið að flytja lagið á ensku undir nafninu Battleline og þeir sem vilja það áfram í keppninni hringja eða senda sms á númerið 900 99 01. Feykir hafði samband við Hrafnhildi Ýr og forvitnaðist svolítið um hana og keppnina.
Hvernig leið þér á sviðinu þann 3. febrúar þegar þið í Fókushópnum fluttu lagið Aldrei að gefast upp? -Okkur leið afskaplega vel á sviðinu á undanúrslitakvöldinu. Við vorum afar vel undirbúin og full af gleði og tilhlökkun. Adrenalínið er mikið á svona stundum og tilfinningarnar sömuleiðis. Þetta var allavega í fyrsta skipti í sögu okkar samstarfs sem við göngum saman af sviði grátandi af gleði.
Hvernig var svo stemningin eftir að ljóst var að þið höfðuð komist áfram? -Við vorum auðvitað algjörlega himinlifandi yfir að hafa komist áfram og frábært að vera lesin upp fyrst. Við (ásamt restinni af keppendunum) vorum reyndar aðeins ringluð því nafnið á laginu var ekki lesið rétt upp! En við föttuðum á endanum að Ragnhildur átti við okkur og rukum af stað upp á svið í gleðikasti. Þó að sjálfsögðu stefni allir að því að komast út til Portúgal er ekki síður mikilvægt að komast í úrslitin því það horfir nánast öll þjóðin á þau. Þetta er því einstakt tækifæri og við ætlum okkur að gera eins mikið úr því og við getum.
Hvað hafið þið verið að gera síðan? -Mánudagsmorguninn eftir undanúrslit lögðum við land undir fót og fórum í þriggja daga ferð um Vesturland og Norðurland þar sem við heimsóttum grunnskóla og tókum svo þátt í Öskudagsgleði á Akureyri, Dalvík og Ólafsfirði. Að auki tókum við svo upp órafmagnað (acoustic) myndband við lagið okkar heima, reiðskemmunni í Dæli.
Þessi ferð var í miðju lægðabrjálæði og því lentum við í ýmsum ævintýrum á leiðinni. Á Hvammstanga komst hluti barnanna ekki í skóla vegna veðurs en við náðum að brjótast þangað með dyggri hjálp björgunarsveitarinnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Á leiðinni frá Hvammstanga yfir á Blönduós heimsóttum við svo einn af vinum okkar sem ekki hafði komist í skólann þann daginn og sungum fyrir hann og foreldra hans í hesthúsunum. Það var frábær stund fyrir okkur og gaf okkur mikla hlýju í hjartað. Það er svo yndislegt að heimsækja skóla og syngja og eiga samskipti við krakka, þau eru svo glöð og þakklát og alltaf til í fíflaskap með okkur.
Við hverju má fólk búast af ykkur á úrslitakvöldinu þann 3. mars? -Á úrslitakvöldinu má búast við nokkrum breytingum á atriðinu. Við erum komin á stærra svið og ætlum að nýta okkur það, bæði hvað varðar grafík og ljós. Við verðum líka í öðrum búningum þá, svolítið meira „júró“. Við erum búin að undirbúa okkur vel og ætlum að leggja hjarta og sál í atriðið. Tónlistin gefur okkur svo mikla gleði, við höfum líka mikinn metnað erum sterkir söngvarar og öll rígvön á sviði. Við munum gera okkar allra besta til að heilla þá sem kjósa og vonum svo sannarlega að okkar heimafólk hjálpi okkur að komast út til Portúgal. Keppnin er mjög jöfn í ár og hvert einasta atkvæði skiptir máli.
Hvað ertu að gera fyrir utan músíkina? -Það eru þó nokkrar breytingar að verða hjá mér í lífinu núna. Í lok mars mun ég hætta störfum sem verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu, þar sem ég hef unnið síðustu fjögur ár og halda á vit nýrra ævintýra. Ég á þó erfitt með að slíta mig frá ferðaþjónustunni og er ásamt sambýlismanni mínum að fara út í gisti- og veitingarekstur á Suðvesturlandi. Svo er alltaf að verða meira og meira að gera í tónlistinni sem er mín helsta ástríða svo ég fagna því. Ég fæ aldrei leið á tónlist.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Ég vil gjarnan koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku á móti okkur á ferðalaginu okkar um Norðurland. Til allra krakkana sem sungu og fífluðust með okkur, til allra kennaranna sem gerðu krökkunum kleift að hitta okkur og til björgunarsveitarinnar á Hvammstanga sem aðstoðaði okkur í ferðinni. Mig langar líka að þakka öllum þeim sem kusu okkur í undanúrslitunum og þakka fyrirfram öllum þeim sem koma til með að kjósa okkur á úrslitakvöldinu. Þið eigið stóran þátt í að við erum að láta draum okkar rætast og fyrir það verðum við ykkur alltaf þakklát. Áfram Fókus!! Aldrei gefast upp!!
Áður birst í 9. tbl. Feykis 2018
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.