Aldrei selst jafnvel í forsölu

Frá Landsmótsssvæðinu á Hólum. Magnús Bragi Magnússon frá Íbishóli vígði nýja keppnisvöllinn á Hólum í Hjaltadal á Birtu frá Laugardal. Ljósm./BÞ
Frá Landsmótsssvæðinu á Hólum. Magnús Bragi Magnússon frá Íbishóli vígði nýja keppnisvöllinn á Hólum í Hjaltadal á Birtu frá Laugardal. Ljósm./BÞ

Undirbúningur og framkvæmdir á tilvonandi landsmótssvæðinu að Hólum í Hjaltadal gengur vel og kominn er hugur í hestamenn fyrir landsmóti næsta sumar, ef marka má ganginn í forsölumiða á mótið. „Aldrei hafa jafnmargir keypt miða í forsölu og nú, en um helmingi fleiri hafa nýtt sér forsöluverðin í ár en áður og sala gjafabréfa hefur sömuleiðis náð nýjum hæðum,“ segir í fréttatilkynningu.

Þann 1. janúar 2016 munu verðin hækka, svo áhugasamir hafa út árið 2015 til að næla sér í miða á hagstæðustu verðunum. Allar upplýsingar um miðaverðin má finna inná www.landsmot.is. Gjafabréf og miða á mótið má kaupa á vef TIX miðasölu, www.tix.is

„Landsmót hestamanna ehf. þakkar góðar viðtökur og óskar hestamönnum sem og landsmönnum öllum, gleðilegs nýs árs og megi árið 2016 verða ykkur gæfuríkt í alla staði,“ segir loks í tilkynningu.

 

Fleiri fréttir