Allir á Unglingalandsmót UMFÍ 3. – 5. ágúst
„Nú hvetjum við alla til að fara á Unglingalandsmót sem haldið verður í Selfossi um verslunarmannahelgina,“ segir í fréttatilkynningu frá UMSS en Unglingalandsmót UMFÍ þann 3. – 5. ágúst nk.
Þeir sem ætla keppa á mótinu þurfa að skrá sig í keppnisgreinar mótsins hér. Mótsgjaldið er 6000 kr. en samkvæmt fréttatilkynningu UMSS greiðir gjaldið niður um helming, þannig að keppendur UMSS greiða 3000 kr. Þátttakendur sem ætla að keppa í knattspyrnu eða körfubolta fylla út dálk neðst á skráningarsíðunni og skrá sig síðan í þann aldursflokk sem á við.
„Þegar búið er að skrá er hægt að velja hvort foreldrar/forráðamenn keppenda borgi strax á netinu eða þegar komið er á Unglingalandsmótið þar sem keppnisgögn eru afhent. Skráningu líkur síðan 29. júlí nk.,“ segir í tilkynningunni.
Ef fólk þarf aðstoð við skráningu eða einhverjar upplýsingar er hægt að hafa samband á umss@simnet.is , í gegnum síma 4535460 eða koma við á skrifstofu UMSS á Víðigrund 5. Einnig bendum við á að hægt er að lesa leiðbeiningar um skráningu á hér.
„Ungmennasambandið í Skagafirði vonast til að sjá sem flesta á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina 2012,“ segir loks í fréttatilkynningu.