Alls sóttu 578 námskeið hjá Farskólanum

Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hélt 55 námskeið á árinu 2013 og voru námsmenn 578 talsins, 365 konur og 213 karlar. Þetta kemur fram í ársskýrslu Farskólans en aðalfundur skólans fór fram 30. apríl sl.

Í skýrslunni kemur fram að 30 námskeið af þeim 55 sem haldin voru á vegum Farskólans fóru fram í Skagafirði eða 30 talsins. Í Húnaþingi vestra voru haldin fimm námskeið og sex á Blönduósi. Sex námskeið voru haldin á tveimur stöðum samtímis í gegnum fjarfundabúnað.

„Námsmenn komu víða að af Norðurlandi vestra. Ef póstnúmer námsmanna eru skoðuð kemur í ljós að flestir komu frá Sauðárkróki og næstflestir komu frá Blönduósi,“ segir í skýrslunni.

Ýmsar áhugaverðar samantektir má sjá í skýrslunni, t.d. var meðalaldur þátttakenda 44 ár. „Flestir námsmenn voru 53 ára (45 ára 2012). Yngsti námsmaðurinn var 14 ára (14 ára 2012) og sá elsti var 80 ára (86 ára 2012). Það voru því 66 ár á milli þess elsta og yngsta,“ segir í skýrslunni.

Rúmlega 70 verktakar leiðbeindu á námskeiðum Farskólans á síðasta ári og námu verktakagreiðslur til þeirra rúmlega 13 milljónum króna.

Hér má skoða árskýrsluna í heild sinni.

 

Fleiri fréttir