Allsherjaratkvæðagreiðsla um formann Samfylkingarinnar

Fram er komin gild krafa um allsherjaratkvæðagreiðslu til að kjósa næsta formann Samfylkingarinnar, en til að krafan sé gild þurfa  a.m.k. 150 skráðir félagar að krefjast hennar. Fylgismenn þeirra Árna Páls Árnasonar og Guðbjarts Hannessonar sem báðir hafa lýst yfir framboði lögðu  kröfuna sameiginlega fram í gær.

Kjörnefnd vegna formannskosningar tilkynnir því eftirfarandi:

Í samræmi við grein 6.01 í lögum flokksins verður nýr formaður Samfylkingarinnar kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal allra skráðra félaga.

Framboð skulu berast eigi síðar en föstudaginn 28. desember nk. kl. 12.00 á skrifstofu flokksins. Framboðum skulu fylgja skrifleg meðmæli a.m.k. 20 flokksfélaga úr hverju kjördæmi.

Kosið verður með rafrænum hætti frá og með 18. janúar til kl. 18.00 þann 28. janúar. Hægt er að fá atkvæðisseðil sendan í bréfpósti og þurfa óskir þar um að koma fram eigi síðar en mánudaginn 21. janúar kl. 18.00 nk. í netfangið kosningar2013@samfylking.is<mailto:kosningar2013@samfylking.is> eða í s.    414-2200

Atkvæðisrétt hafa allir skráðir félagar í Samfylkingunni sem eru skráðir í flokkinn í síðasta lagi föstudaginn 11. janúar 2013 kl. 18.00.

Fleiri fréttir