Allt að 62% vinnuafls starfar hjá Framúrskarandi fyrirtækjum

Eins og sagt var frá í 6. tölublaði Feykis, fyrr í þessum mánuði, eru tólf fyrirtæki á Norðurlandi vestra á lista yfir þau 682 fyrirtæki landsins af tæplega 35.842 sem skráð eru í hlutafélagaskrá. Stóðust þau fyrirtæki styrkleikamat Creditinfo og teljast því vera Framúrskarandi fyrirtæki 2015.
Feykir fékk ábendingu um að mjög stór hluti vinnuafls á svæðinu starfaði við þessi fyrirtæki. Þegar betur er að gáð má ætla að fyrirtækin skapi allt að 62% starfa á svæðinu. Í svari Stefáns Önundarsonar hjá Creditinfo við fyrirspurn Feykis vegna þessa kemur fram að allt að 62% vinnuafls á Norðurlandi vestra starfi hjá umræddum fyrirtækum. „Sá fyrirvari er hins vegar á þessu að við eigum ekki alltaf til gögn um fjölda starfsmanna. Ég geri til dæmis ráð fyrir að á þessum svæði séu fleiri en 1.372 störf. En samkvæmt þessu eru þó 62% starfsmanna á svæðinu í vinnu hjá Framúrskarandi fyrirtæki,“ sagði Stefán.
Fyrirækin eru, eins og fram hefur komið, eftirfarandi: Ámundakinn ehf., Friðrik Jónsson ehf., Fisk Seafood ehf., Kaupfélag Vestur-Húnvetninga svf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða ehf., Raðhús ehf., Skarfaklettur ehf., Sláturhús KVH ehf., Steinull hf., Tengill ehf. og Vörumiðlun ehf.