Almannavarnir vara við vonskuveðri

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við væntanlegu óveðri á svæðinu. Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra sem tók gildi nú síðdegis og gildir fram á morgundaginn.

Tilkynning ANV er á þessa leið: „Nú haustar og óhjákvæmilegur fylgifiskur þess eru haustlægðir. Nú stefnir í þá fyrstu þetta haustið. Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra vill vekja athygli á því veðri sem í vændum er. Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra, sem að tekur gildi nú síðdegis í dag og gildir fram á morgundaginn. Eða eins og segir á vedur.is: „Suðvestan 18-25 m/s og vindhviður víða yfir 30 m/s, einna hvassast á Ströndum. Varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum eins og garðhúsgögnum og trampólínum.“

Á morgun kólnar og gæti slyddað eða snjóað á fjallvegum. Hvetjum við alla til að nota daginn í dag til að huga að lausamunum og koma þem í skjól og þeir sem hyggja á ferðalög á morgun að fylgjast mjög vel með ástandi vega áður en lagt er af stað.“

Hér á Norðurlandi virðist veðrið vera sínu verst á Öxnadalsheiði nú um sexleytið en þá var vindur 24 m/sek og slær í 35 m/sek í hviðum. Hlýtt verður í kvöld og fram eftir nóttu en bálhvasst og sumstaðar blautt en líkt og segir í tilkynningunn snöggkólnar með morgninum enda snýst áttin úr suðvestan í norðan. Það verður áfram kalt fram í vikuna en útlit fyrir hlýrra og skaplegra veður þegar nálgast helgina.

Finna má upplýsingar um færð og veður á netsíðum Vegagerðarinnar, www.vegagerd.is, og Veðurstofunnar, www.vedur.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir