Alþjóðadagur punktaleturs er í dag

Punktaletur Luis Braille í hraðbanka fyrir blinda eða sjónskerta.
Punktaletur Luis Braille í hraðbanka fyrir blinda eða sjónskerta.

Alþjóðadagur punktaleturs (Alþjóðlegur dagur blindraletursins) er viðburðardagur haldinn 4. janúar ár hvert til að auka vitund um mikilvægi blindraletur sem samskiptatækis til að auka mannréttindi blindra og sjónskertra fólks.

Á  WikiPedia er greint frá því að Frakkinn Louis Braille, (1809-1852) blindur á báðum augum, hafi, 16 ára gamall, fundið upp blindraletrið eða punktaletrið eins og menn vilja kalla það nú. Grunnurinn í letrinu eru sex upphafnir punktar sem raðað er í tvær raðir lóðrétt með þremur punktum í hverri röð innan ferhyrnds svæðis. Munstrið má síðan nema með fingurgómum. Kerfi Braille byggði á 12 punkta hermerkjakerfi sem landi hans Charles Barbier útbjó fyrir Napóleon en þótti allt of flókið. Braille einfaldaði kerfið til muna með því að nota einungis sex punkta. Þetta kerfi sem kennt er við hann gerir enn þann dag í dag blindum og sjónskertum kleift að lesa og skrifa.

Punktaletrið er þekkt og viðurkennt víða um heim og má finna það víða, til dæmis á lyfjapakkningum, í lyftum, á leiðbeiningarskiltum, vegvísum o.s.frv.

Að undirlagi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í nóvember árið 2018, að punktaletursins skyldi minnst á afmælisdegi Louis Braille, höfundi þess en fyrsti alþjóðadagur punktaletursins var haldinn hátíðlegur 4. janúar 2019.

Íslenskt punktaletur
Íslenskt punktaletur er fyrsta ritmál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Íslenska blindraletrið á rætur að rekja til franska blindraletursins að viðbættum nokkrum séríslenskum stöfum. Þann 27. maí árið 2011 lögfesti Alþingi íslenskt punktaletur sem fullgilt íslenskt ritmál. Það segir að „…hver sem hefur þörf fyrir blindralestur vegna skerðingar á sjón skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt punktaletur um leið og hann hefur getu til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir