Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn í dag
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
25.09.2013
kl. 10.45
Frá árinu 2000 hefur alþjóðlegur skólamjólkurdagur verið haldinn síðasta miðvikudag í september að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi er haldið upp á hann í dag, miðvikudaginn 25. september, undir kjörorðinu Holl mjólk og heilbrigðir krakkar.
Íslenskir kúabændur gefa um 70.000 börnum í grunn- og leikskólum landsins um 16.000 lítra af mjólk í tilefni dagsins./BHB