Alvarlegar athugasemdir gerðar við ákvörðun og embættisfærslu fráfarandi slökkviliðsstjóra

Á fundi Brunavarna Austur Húnavatnssýslu sl. mánudag var leitað eftir skýringum á þeirri ákvörðun fráfarandi slökkviliðsstjóra Hilmari Frímannssyni að hafa skilað klippum sem hafa verið í láni og eru í eigu Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins (SHS). Segir í fundargerð að ljóst megi vera að með þeirri ákvörðun var verið að veikja viðbúnað á starfssvæði Brunavarna A-Hún. án samþykkis stjórnar Brunavarna A-Hún og án þess að tryggja nauðsynlegan viðbúnað.

Stjórnin gerði Hilmari grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem upp kom með aðgerðum hans þar sem klippur í eigu Brunavarna A-Hún eru gamlar. Ljóst er með ákvörðun sinni vó fráfarandi slökkviliðsstjóri að öryggi samborgara sinna, segir ennfremur í fundargerð en stjórnin gerði alvarlegar athugasemdir við ákvörðun og embættisfærslu fráfarandi slökkviliðsstjóra.

 

Stjórn BAH hefur að höfðu samráði við SHS gengið frá því að klippibúnaðurinn verði lánaður á ný til Brunavarna A-Hún.

Hilmar Frímannson sagði upp störfum frá og með 1. febrúar 2012 og voru starfslok hans 30. apríl 2012.  Jón Jóhannsson varaslökkviliðsstjóri mun gegna starfi slökkviliðsstjóra Brunavarna A-Hún.

Fleiri fréttir