Ályktað um opinbera þjónustu
Á ársþingi SSNV sem var haldið í október sl. var lög fram ályktun um opinbera þjónustu í landhlutanum. Var þess meðal annars krafist að þeir sem þurfa að sækja þjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu fjarri heimabyggð fengju það að einhverju móti bætt.
Ályktunin var svohljóðandi:
„Íbúar Norðurlands vestra gera sér grein fyrir því að ekki er mögulegt að ríkið veiti öllum íbúum landsins sömu þjónustu í þeirra heimabyggð. Afar mikilvægt er að ríkisvaldið skilgreini heildstætt hvaða þjónustu skuli standa íbúum til boða í þeirra heimabyggð og hvaða þjónustu íbúar skuli sækja annað.
Vel er skiljanlegt að ekki sé mögulegt að veita t.d. fullkomnustu heilbrigðisþjónustu nema á Landspítalanum en það er dapurlegt til þess að hugsa að engin fæðingarþjónusta er lengur í landshlutanum og er það með öllu óásættanlegt.
Það er ekki auðvelt að sannfæra ungt fólk um að setjast að í landshlutanum þegar þessarar þjónustu nýtur ekki við. Gera verður þá kröfu að grunnþjónusta, s.s. heilsugæsla og löggæsla, sé sem næst íbúunum. Á undanförnum árum hefur verið þrengt að þessum þáttum, eins og flestum öðrum í landshlutanum. Íbúar landshlutans ætlast til þess af stjórnvöldum að búið sé þannig að þessum mikilvægu þáttum að íbúar finni fyrir öryggi og upplifi sig í öruggu umhverfi, bæði hvað varðar heilbrigðisþjónustu og ekki síður löggæslu.
Krafan hlýtur því að vera sú að lögreglan hafi úr meiri fjármunum að spila þannig að fleiri lögreglumenn verði ráðnir til starfa til að sinna öryggi íbúa. Það sama á við um heilsugæsluna. Það er afar mikilvægt að hún sé sem best mönnuð, m.a. með föstum starfsmönnum, þannig að eftirfylgni við þá sem til heilsugæslunnar leita verði markvissari.
Gera verður þá kröfu að sú þjónusta sem auðvelt er að veita, t.d. í gegnum internetið, standi öllum landsmönnum til boða. Má þar t.d. nefna þjónustu Háskóla Íslands og margra annarra stofnana sem allir landsmenn halda uppi með sköttum sínum.
Krefja verður stjórnvöld um að þau tryggi búsetujafnrétti þ.e. að þeir sem þurfa að sækja þjónustu fjarri sinni heimabyggð, t.d. heilbrigðisþjónustu, fái það bætt með einhverju móti. Einni verður að krefjast þess af stjórnvöldum að stofnanir þeirra, s.s. Íslandspóstur, starfi í samræmi við lög sem um þær gilda.