Ályktun Hólamannafélagsins – hollvinafélags Háskólans á Hólum

Stjórn Hólamannafélagsins skorar á Alþingi og stjórnvöld að taka höndum saman um að tryggja sem best framtíð Háskólans á Hólum, sem sjálfstæðrar og framsækinnar háskólastofnunar. Ekki þarf að minna á margra alda sögu Hólastaðar sem biskups-, menningar- og menntaseturs og þá skyldu sem samtíminn hefur við slíka helga sögustaði. Þeirri skyldu verður best sinnt með því að efla starfsemi á staðnum sem verður þjóðinni að sem mestu gagni. Þar hefur tekist einstaklega vel til.

Á síðustu árum hefur Háskólinn á Hólum byggt upp öflugar og hagnýtar námsbrautir á háskólastigi í hestafræðum, ferðamálafræðum og fiskeldi og fiskalíffræði. Einnig er í boði rannsóknartengt framhaldsnám á meistarastigi. Rétt er að benda á að það starf sem unnið er í Háskólanum á Hólum er þjóðhagslega mikilvægt og er á fræðasviðum sem aðrir háskólar sinna ekki. Afar mikilvægt er að skólanum sé gert kleift að sinna þeim með viðunandi hætti.

Þrátt fyrir að fjárveitingar til skólans hafi ekki fylgt eftir örri stækkun hans, hefur tekist að þróa skólastarfið og byggja upp alþjóðleg sambönd með öruggum hætti. Jafnframt gegnir skólinn mikilvægu hlutverki héraði sem öflugur þekkingargrunnur og stoð við ýmsa aðra starfsemi á þeim slóðum. Því er brýnna en nokkru sinni fyrr að tryggja skólanum nauðsynlegt fjármagn næstu ár til að tryggja sjálfstæði hans og efla núverandi starfsemi.

Samþykkt af stjórn félagsins 13. desember, 2013

Fleiri fréttir