Ályktun um fjárskort við uppbyggingu ferðamannastaða

Aðalfundur Mývatnsstofu ehf, sem haldinn var í gær, sendi frá sér svohljóðandi ályktun:
Aðalfundur Mývatnsstofu haldinn í Mývatnssveit 14. maí lýsir áhyggjum af
litlum fjármunum til uppbygginga á ferðamannastöðum. Ljóst er að mikilla
fjármuna er þörf og úrbætur og uppbygging víða brýn til að koma í veg fyrir
óafturkræf náttúruspjöll.

Aðalfundur Mývatnsstofu lýsir áhyggjum af þeim farvegi sem þessi mál virðast
vera að fara inn í, þar sem einstakir landeigendur hyggjast selja ferðamönnum
aðgang að náttúruperlum.

Mývatnsstofa.

Aðalfundurinn skorar því á Samtök ferðaþjónustunnar og stjórnvöld að hefja
nú þegar gjaldtöku af ferðamönnum sem staðið geti undir nauðsynlegri
uppbyggingu og rekstri á ferðamannastöðum á næstu árum, sem verði öllum
til hagsbóta.

KSE/ Fréttatilkynning

Fleiri fréttir