Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var haldin á Hvolsvelli 29. – 31. mars sl. og voru samþykktar ályktanir og hvatningarorð til samfélagsins. M.a. er skorað á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að þau ríki sem fullgilt hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna virði hann og haldi á lofti. Einnig vill ráðstefnan að íslensk stjórnvöld hvetji öll ríki til að fullgilda sáttmálann. Öll aðildarríki SÞ, utan Sómalíu og Bandaríkjanna, hafa gert það.

Eftirfarandi var samþykkt á ráðstefnunni:

Ráðstefnan fer fram á að sveitarfélögin, í samstarfi við ríkið, komi á fót ungmennahúsum um allt land. Markmiðið skal vera að allir á aldrinum 16-25 ára eigi greiðan aðgang að slíku húsi. Ráðstefnan lýsir yfir áhyggjum sínum af atvinnumálum ungs fólks. Ríflega tvö þúsund manns á aldrinum 15-25 voru á atvinnuleysisskrá í lok febrúar og þá eru ekki taldir með námsmenn á leið út á vinnumarkaðinn í sumar.

Við hvetjum ungmenni til að krefjast þess að stofnuð séu ungmennaráð í sínum sveitarfélögum. Réttast væri að starfsemi ungmennaráða í öllum sveitarfélögum landsins yrði sett í lög. Ráðstefnan hvetur til þess að haldinn verði þjóðfundur ungs fólks með það markmið að ungt fólk geti rætt saman og ákveðið sjálft hvernig það vill sjá sína aðkomu að stjórnkerfi landsins.

Ráðstefnan þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir að standa fyrir ráðstefnu á borð við Ungt fólk og lýðræði. Hún gefur ungu fólki færi á að mynda tengsl, ræða sín viðhorf, koma þeim á framfæri og sanna fyrir því að það geti haft áhrif. Við hvetjum til þess að ráðstefna sem þessi verði haldin á hverju ári og megi aðrir taka UMFÍ sér til fyrirmyndar.

Ráðstefnan þakkar forseta Íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir að gefa sér tíma til að heimsækja ráðstefnuna og ávarpa hana. Ávarp hans var hvetjandi og gaf okkur byr undir báða vængi fyrir vinnu helgarinnar. Frábært var að finna fyrir trú hans á ungu fólki og sannfæringu á að við getum skipt miklu máli í samfélaginu.

Fleiri fréttir