Anna Karen og Arnar Geir klúbbmeistarar GSS 2022

Arnar Geir og Anna Karen hlaðin verðlaunagripum. MYND AF SÍÐU GSS
Arnar Geir og Anna Karen hlaðin verðlaunagripum. MYND AF SÍÐU GSS

Meistaramót GSS fór fram dagana 12.-16. júlí. Tæplega 60 þátttakendur tóku þátt í mismunandi flokkum. Keppt var í Meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og kvenna, 2 flokki karla, háforgjafarflokki, öldungaflokki og barnaflokkum.Systkinin Anna Karen Hjartardóttir og Arnar Geir Hjartarson unnu mjög sannfærandi sigur í meistaraflokkunum.

Fram kemur á Facebook-síðu Golfklúbbs Skagafjarðar að Anna Karen vann öruggan sigur í Meistaraflokki kvenna og ímeistaraflokki karla vann Arnar Geir einnig öruggan sigur. Þau systkinin eru því klúbbmeistarar GSS árið 2022.

Í fyrsta flokki kvenna sigraði Dagbjört Sísí Einarsdóttir
Í fyrsta flokki karla sigraði Tómas Bjarki Guðmundsson
Í öðrum flokki karla sigraði Róbert Óttarsson
Í öldungaflokki sigraði Guðrún Björg Guðmundsdóttir
Í háforgjafarflokki sigraði Auður Haraldsdóttir

Í fréttinni segir að veður var mjög mismunandi dagana sem mótið fór fram. Fyrsti dagurinn var afleitur en þá kepptu börn og öldunguar, annars var hið besta veður. Nánari upplýsingar má sjá á GolfBox.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir