Annar þáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla í kvöld

Annar þáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla fer í loftið á Feyki.is í kvöld. Þættirnir verða sjö talsins og er rætt við forsvarsmenn frumkvöðlafyrirtækja á Norðurlandi vestra. Í þetta sinn er Lilja Gunnlaugsdóttir heimsótt en hún rekur handverksfyrirtækið Skrautmen.

Í fyrstu sex þáttunum er fyrirtæki heimsótt og farið er yfir starfsemina, allt frá hugmynd til framleiðslu, og viðmælendur inntir eftir því hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvernig staðið er að hinum ýmsu þáttum starfseminnar. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf.

Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttastjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson.

Fleiri fréttir