Annars hugar unglingar
Umferð í þéttbýli vex til muna þegar skólar byrja á haustin. Samhliða eykst hætta á slysum þar sem ekið er á unga vegfarendur, sérstaklega við upphaf og lok skóladags. Ökumenn þurfa því venju fremur að vera vel vakandi við stýrið og virða hámarkshraða.
Í gegnum árin hefur verið lögð mikil áhersla á að fræða yngstu vegfarendurna þ.e. leikskólabörn og börn í fyrstu bekkjum grunnskólans um örugga hegðun í umferðinni. Að fara öruggustu leiðina í skólann sem þarf ekki að vera sú stysta, nota gangbrautir þar sem unnt er, nota öryggisbúnað, líta til beggja hliða og hlusta áður en farið er yfir götu og svo framvegis.
Samkvæmt gögnum Samgöngustofu hefur alvarlegum slysum og banaslysum þar sem ekið er á barn á grunnskólaaldri fækkað um 16% síðustu fimm ár í samanburði við næstu fimm ár þar á undan. Sambærileg þróun hefur orðið í mörgum nágrannalöndum okkar. Í Bandaríkjunum hefur slysum þar sem gangandi barn verður fyrir bíl fækkað um helming á undanförnum 20 árum. Áður lentu börn á aldrinum 5 til 9 ára í flestum slysum en nú slasast unglingar oftast. Talið er að notkun farsíma hafi þar sitt að segja, þ.e. að athyglin beinist að þeim en ekki umhverfinu.
Það er því mikilvægt að forráðamenn ræði öryggismál í umferðinni einnig við eldri grunnskólabörn. Þar á meðal um athygli, notkun á öryggisbúnaði s.s. endurskini, bílbelti og hjálmi, mikilvægi þess að fara öruggustu leiðina og notkun á vespu og hjóli svo nokkuð sé nefnt.
/Fréttatilkynning