Annasamt hjá björgunarsveitum í gær
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
12.04.2015
kl. 11.33
Björgunarsveitir aðstoðuðu bílstjóra í ófærð og sinntu lokunum vega af sömu orsökum víða um land í gær. Þá var Vatnsskarðið til dæmis lokaðþar sem bílar sátu fastir. Jafnframt sátu bílar fastir í Fitjaskarði við Hvammstanga og víðar, samkvæmt vef Landsbjargar.
Á facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð segir að mikið hafi verið um að vera hjá björgunarsveitarmönnum í vitlausu veðri. Hjálpa þurfti fólki og bílum niður af Vatnsskarðinu, eins voru óhöpp niður í byggð. Um 12 manns tóku þátt í aðgerðunum.
Fleiri myndir má sjá á facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar.