Annasamt hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps - Feykir TV
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
13.04.2015
kl. 16.52
Í mars flutt Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, ásamt hljómsveit Skarphéðins Einarssonar, viðamikla dagskrá sem helguð var minningur Ellyjar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna. Blaðamaður Feykis skellti sér á tónleika í Miðgarði og á Sauðárkróki og tók um leið formann kórsins, Höskuld B. Erlingsson tali.
Framundan hjá kórnum er afmælisfagnaður í tilefni af 90 ára afmæli kórsins, en hann verður haldinn í Húnaveri að kvöldi síðasta vetrardags. Þá stefnir kórinn á Kanadaferð í sumar, þar sem hann mun taka þátt í Íslendingadeginum.
https://youtu.be/zvdh4DxdXvI