Annir hjá björgunarsveitum

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa víða verið að störfum í dag. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar hefur mest verið að gera í Húnavatnssýslum, norðanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi. Í Húnavatnssýslum hafa borist hátt í 30 aðstoðarbeiðnir.

Björgunarsveitin Húnar frá Hvammstanga í óveðursaðstoð rétt eftir hádegi á Vatnsnesi. Mynd: Ingibjörn Gunnarsson

Mest var að gera um hádegisbil í dag, segir á heimasíðunni, en ástandið róaðist þegar leið á daginn. Verkefnin eru af öllum toga, allt frá brotnum rúðum í bílum upp í laus hlöðuþök.  Þakplötur hafa víða losnað, þ.m.t. á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga sem og í sveitum í kring.

 

 

Fleiri fréttir