Annir í umferðaeftirliti hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra
Alls voru 54 ökumenn verið stöðvaðir vegna hraðaksturs í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra í síðustu viku, þar af voru tólf erlendir ferðamenn. Þá er einn ökumaður, stöðvaður í Skagafirði, grunaður um ölvun við akstur en hann mældist á 113 km/klst. „Verkefni síðastliðinnar viku eru af ýmsum toga en þar spila umferðarmálin stærstu rulluna samkvæmt venju. Veður og aðstæður hafa verið mjög góðar og þá hættir mönnum til að aka of hratt,“ segir í færslu lögreglunnar á Facebook.
Af öðrum verkefnum segir að lögreglumenn umdæmisins hafi haldið úti eftirliti með notkun öryggisbúnaðar við grunn, - og leikskóla umdæmisins, þ.e.a.s. kannað hefur verið hvort að ökumenn bifreiða noti öryggisbelti og bílstóla er börnum er ekið til skóla sinna. „Ökumönnum til hróss þá hefur ekki verið mikið um athugasemdir,“ segir á síðunni.
„Nokkur minniháttar slys urðu í vikunni en lögreglumenn frá Blönduósi fóru þó til aðstoðar kollegum sínum úr Borgarnesi aðfaranótt sl. laugardags er umferðarslys varð á Holtavörðuheiði, Borgarfjarðarmegin. Þar varð alvarlegt umferðarslys. Slysin gera ekki boð á undan sér en við getum minnkað líkurnar á meiðslum með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar. Komum heil heim!“ segir loks á síðunni.