Aprílgabb Feykis skemmtilegasta fréttin
Í þætti Hemma Gunna á Bylgjunni í gær sunnudag var aprílgabb Feykis um heimsætubita, ost úr brjóstamjólk valin skemmtilegasta frétt vikunnar. Þá höfðu Pressumenn áhuga á gabbinu og voru á laugardag með viðtal við Svavar Sigurðsson ostameistara um málið.
Upplýsti Svavar um að á föstudag hefðu tvær blaðskellandi konur mætt í samlagið og viljað selja mjólk. Ekki bjóst hann þó við að fara út í framleiðslu en bætti við að gaman gæti orðið að fylgjast með mjöltum.