Áramótadansleikur í Félagsheimilinu Blönduósi
Áramótadansleikur verður haldinn í Félagsheimilinu Blönduósi á nýársnótt frá klukkan 00:30 til 04:00.
Hinn þjóðkunni og sívinsæli Bjartmar Guðlaugsson heldur uppi fjörinu en hann er þekktur fyrir slagara eins og „Súrmjólk í hádeginu“ (og cheerios á kvöldin), „Týnda kynslóðin“, „Fimmtán ára á föstu“ og fleiri.
Aldurstakmark inn á ballið er 16 ár.