Áramótagleði á Blönduósi
Áramótabrenna og flugeldasýning verða á sínum stað á Blönduósi í kvöld í umsjón Björgunarfélagsins Blöndu. Tendrað verður í brennunni klukkan 20:30 og hefst flugeldasýningin skömmu síðar. Rétt eftir miðnætti verður áramótadansleikur í Félagsheimilinu.
Þeir sem enn eiga eftir að versla flugelda geta gert það í dag en flugeldasala Blöndu verður opin til klukkan 16. Vakin skal athygli á því að börn yngri en 16 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum. Flugaldasalan er aðal fjáröflun björgunarfélagsins.
Hið árlega áramótaball verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi á nýársnótt og opnar húsið klukkan 00:30. Hljómsveitin Trukkarnir ætlar að halda uppi stuðinu og stemmningunni inn í nýjar árið. Aldurstakmark er 16 ár.