Ari Trausti á Króknum
Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti Guðmundsson heimsótti Sauðárkrók fyrr í vikunni og skilaði meðal annars undirskriftalista sínum til sýslumannsins með meðmælendum hans til forsetaframboðsins. -Á tímum hraðans hef ég ferðast víða um land til að hitta mann og annan vegna framboðsins til embættis forseta Íslands og til þess að taka sjálfur þátt í söfnun undirskrifta undir meðmæli með framboðinu, segir Ari í pistli sem hann sendi Feyki.
-Þetta er skemmtileg iðja og margt að sjá, heyra og læra af. Þannig hef ég náð að fara um hluta Austurlands, um norðanverða Vestfirði, með allri suðurströndinni, um norðanvert Snæfellsnes og miðhluta Norðurlands, þar með t.d. til Akureyrar, Fjallbyggðar og Grímseyjar, sem var einkanlega ánægjulegt. Því miður reynist ómögulegt að koma til allra þessara 50-60 þéttbýlisstaða sem á kortum eru en raunar get ég , í júní, sinnt sumum þeirra sem ég á eftir.
Síðasta heimsóknaferðin í þessari lotu var til Sauðárkróks fyrir nokkrum dögum.
Fyrir utan að snæða þar og hitta Ríkharð Másson sýslumann vegna skila á undirskriftalistum og nokkra starfsmenn sýsluskrifstofunnar, heimsóttum við Árni Árnason KS, bæði í Kjarnann og á skrifstofur samstæðunnar. Ekki þarf að tíunda starfsemina fyrir Skagfirðingum og Sauðárkróksbúum en okkur þótti mikið til koma, bæði að sjá samvirknina og kynnast vinnuandanum í Kjarnanum og fræðast um stærð og umsvif fyrirtækisins hjá forsvarsmönnunum. Ekki sakar að geta þess að bróðursonur minn vinnur hjá KS; Yngvi Yngvason. Við héldum stórum fróðari áfram til Akureyrar.
Þessi pistill er skrifaður fyrst og fremst til að þakka móttökurnar, bæði vinsamlegar og vandaðar.