Armbönd til styrktar ADHD samtökunum

“Frumleg og fjölbreytt – Óheft og allskonar. Vertu þú sjálfur – Gerðu það sem þú vilt" eru einkunarorð vitundarvakingar sem ADHD samtökin efna til nú í júní. Vitundarvakningin felst í sölu armbanda til styrktar starfseminni og um leið er vakin athygli á starfi samtakanna og stöðu einstaklinga með ADHD.

Efnt var til samskonar vitundarvakningar síðastliðið vor undir yfirskriftinni, “Ég er gimsteinn – Hvað með þig?”

Á vef ADHD samtakanna kemur fram að nú verða boðin til sölu fjölbreytt armbönd úr leðri, skreytt perlum og táknum en þau eiga að minna okkur á fjölbreytileika mannlífsins. Jafnframt eiga þau að vísa til þess að öll eigum við okkar góðu hliðar, erum hlaðin kostum hvert á sinn hátt og því ber að fagna fjölbreytileikanum.

Salan hófst á mánudaginn, 16. Júní en Helgi Björnsson, stórsöngvari með meiru, tók við fyrsta armbandinu. Nú í kjölfarið munu íþróttafélög, einstaklingar og fleiri selja armböndin um land allt. Þá verður hægt að kaupa armböndin HÉR á vef ADHD samtakanna.

Sala armbandanna er einn margra viðburða sem ADHD samtökin efna til á árinu.

Fleiri fréttir