Arnar Geir í hörkukeppni um Íslandsmeistaratitilinn í pílukasti

Á morgun ráðast úrslitin í Úrvalsdeildinni í pílukasti, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fjórir keppendur eru komnir í úrslit eftir undanriðlana en þar á meðal er Skagfirðingurinn Arnar Geir Hjartarson sem hefur gert garðinn frægan þrátt fyrir að stutt er síðan hann fór að kasta pílunum.

Á heimasíðu Íslenska pílusambandsins eru keppendur kynntir til leiks og er okkar maður þar í fremstur í stafni:

Fyrstur í úrslitin er Arnar Geir Hjartarson, 27 ára starfsmaður upplýsingatæknideildar hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Hóf að keppa í pílu fyrir einu og hálfu ári og keppir fyrir Tindastól

Annar í úrslitin er enginn annar en „handsprengjan“, Vitor Charrua, fyrrverandi Íslandsmeistari og einn allra fremsti pílukastari landsins.

Þriðji í úrslitin er hann Karl Helgi Jónsson, 57 ára kokkur sem hefur verið með þeim fremstu á Íslandi undanfarin ár.

Fjórði keppandi kvöldsins er svo hinn 18 ára gamli Alexander Veigar Þorvaldsson, nemi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en hann er þrefaldur Íslandsmeistari unglinga og afar efnilegur.

Bein útsending frá keppninni hefst á laugardaginn n.k. 3. desember klukkan 20 á Stöð 2 Sport. Strax í kjölfarið tekur Stjörnupílan 2022 við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir