Arnar Már pílaði best
Fimmta mótið í Kaffi Króks mótaröð Pílukastfélags Skagafjarðar fór fram í gærkvöldi. Það voru sautján pílukastarar sem mættu til leiks og var spilað í þremur deildum. Úrslitin urðu þau að í A deild reyndist forstjóri Byggðastofnunar, Arnar Már Elíasson, seigastur pílukastara og fór því með sigur af hólmi.
Í B deild sigraði Axel Arnarsson. Í C deild sigraði Þröstur Kárason.
Það var síðan Hjörtur Geirmundsson sem átti hæsta útskot kvöldsins – það var 160 og geri aðrir betur.
Heimild: Facebooksíða Pílukastfélags Skagafjarðar