Arnar Þór bjartsýnn á gagnaver
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi er bjartsýnn á að gagnaver rísi í náinni framtíð á Blönduósi enda sé mikill vöxtur í þeim geira í heiminum. „Við skulum átta okkur á því að það er veldisvöxtur í þessum geira. Ég held ég fari rétt með þegar ég segi að gagnamagn tvöfaldist á tveggja ára fresti sem þýðir að það þarf gríðarlega uppbyggingu gagnavera á næstu árum. Þetta er sem sagt réttað byrja,“ segir Arnar Þór í samtali við Viðskiptablaðið.
Húni.is gerir góða grein fyrir viðtalinu og bjartsýni bæjarstjórans á komu erlendra aðila enda aftur farinn að merkja meiri áhuga á Íslandi í tengslum við uppbyggingu gagnavera. Hann segir að þrátt fyrir vonbrigði fyrri ára sé hann nú bjartsýnn enda hafi hann nýlega átt í óformlegum viðræðum við fyrirtæki frá Evrópu, Bandaríkjunum og Mið-Austurlöndum um byggingu gagnavers á Blönduósi. Ekkert sé þó fast í hendi.
Sjá umfjöllun Húna.is HÉR