Árshátíð Blönduskóla
Á morgun föstudag verður mikið líf og fjör í Blönduskóla en þá fer fram hin árlega árshátíð skólans í Félagsheimilinu á Blönduósi. Dagskráin hefst klukkan 20:00 á ávarpi formanns nemendaráðs en strax á eftir verður sýnt leikritið Uppgjörið í leikstjórn Jófríðar Jónssonar.
Eftir að leikritið hefur verið flutt verður hin geysivinsæla keppni Blönduvision á dagskrá. Þar munu nokkrir nemendur úr elstu bekkjum skólans leika undir hjá keppendum.
Rúsínan í pylsuendanum verður svo þegar Stefán Rafn úr Promo plötusnúðast á dansleik.