Árshátíð Blönduskóla í kvöld
Hin árlega árshátíð Blönduskóla verður haldin í kvöld 25. febrúar í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin hefst kl. 20:00 og lýkur kl. 01:00. Eins og venjulega verður happdrætti.
Dagskrá hefst með ávarpi formanns nemendaráðs Elínborgar Telmu Ágústsdóttur, næst verður sýnt leikritið Iris í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur. Eftir leikritið verða glæsilegar kaffiveitingar og svo verður hin árlega og frábæra Blönduvision sem allir bíða spenntir eftir. Undirleikur er í höndum nokkurra nemenda úr elstu bekkjum skólans.
Að lokinni skemmtidagskrá fer fram dansleikur þar sem hinn frábæri plötusnúður DJ Doddi Mix spilar fyrir dansi.
- Miðaverð
- 6. bekkur og eldri kr. 2.000.-
- 1. – 5. bekkur kr. 1.000.-
- 6 ára og yngri fá frítt.
Krakkarnir vona að sem flestir sjái sér fært að mæta.