Ársreikningur Blönduósbæjar 2014
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
03.06.2015
kl. 12.29
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar var ársreikningum Blönduósbæjar 2014 teknir til fyrri umræðu. Samkvæmt honum voru rekstrartekjur 790,1 milljónir króna og rekstargjöld 716,1 milljónir króna. Fjármagnsgjöld voru 30,5 milljónir króna.
Niðurstaða úr rekstri er tap A og B hluta uppá 7,4 milljónir króna en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir hagnaði uppá 4,3 milljónir króna. í
Fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir tekjum upp á 788,3 milljónir króna. Eigið fé Blönduósbæjar í árslok 2014 nam 606,4 milljónum króna. Almennar umræður og fyrirspurnir urðu um ársreikninginn en var honum síðan vísað til síðari umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar.