Ásgarður stækkaður um 230 fermetra
Á mánudaginn hóf Loftorka að reisa veggi viðbyggingar við Ásgarð, veiðihús Laxár á Ásum. Stefnt er að því að viðbyggingin verði orðin fokheld í byrjun desember. Unnið verður að uppsetningu innveggja og innréttinga á fyrri hluta næsta árs. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði tilbúin vel fyrir næsta laxveiðitímabil sem hefst upp úr miðjum júní.
Um miðjan júlí síðastliðinn tók Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Páll A. Jónsson, formaður Veiðifélags Laxár á Ásum, fyrstu skóflustunguna að stækkun veiðihússins að viðstöddu fjölmenni. Veiðihúsið verður stækkað um 230 fermetra og á viðbyggingin að nýtast undir gistiaðstöðu fyrir veiðimenn og starfsfólk og undir vöðlugeymslu. Húnahornið greinir frá þessu.