Áskorun til Alþingismanna vegna nýrra laga um velferð dýra
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands skorar á Alþingi að setja ný lög um velferð dýra á dagskrá fyrir þinglok. Dýraverndarsamband Íslands styður frumvarpið í grundvallaratriðum og telur að með því verði málsmeðferð og umgjörð dýravelferðarmála á Íslandi betur komið en nú er. „Við fögnum ýmsum nýmælum í frumvarpinu en þar má nefna að nú verður í fyrsta sinn viðurkennt í lögum að dýr séu skyni gæddar verur og skuli því ekki eingöngu vera litið á þau sem eign í málum er varða velferð þeirra,“ segir í tilkynningu frá DÍS.
„Sem framsögumaður málsins fyrir hönd atvinnuveganefndar fagna ég áskorun Dýraverndarsambands Íslands. Ég tel það væri til mikilla bóta að afgreiða heildstæða löggjöf um dýravelferð fyrir þinglok,“ segir Ólína Þorvarðardóttir þingmaður.
Meginmarkmið frumvarpsins er að koma á heildstæðri löggjöf um velferð dýra og einfalda framkvæmd og eftirfylgni mála sem varða málaflokkinn. Samhliða frumvarpinu og í sama tilgangi leggur atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra fram frumvarp til laga um búfjárhald. Með lögfestingu frumvarpanna verða felld úr gildi lög nr. 15/1994, um dýravernd, með síðari breytingum, og lög nr. 103/2002, um búfjárhald o.fl., með síðari breytingum.