Áskorun um margföld framlög til byggðamála
Aðalfundur Beint frá býli, félags heimavinnsluaðila, fór fram 16. apríl sl. að Hraunsnefi í Borgarbyggð. Í upphafi fundar flutti gestur fundarins, Elfa Björk Sævarsdóttir frá Rauðabergi á Mýrum, stutt erindi um hugmynd sem hún er með og gengur út á að veita faglega aðstoð við uppsetningu á gæðakerfi í heimavinnslum. Elfa er matvælafræðingur að mennt og hefur unnið hjá Actavis síðustu 18 ár við gæðastjórnun.
Formaður stiklaði á stóru um starfsemi félagsins síðasta árið. Þá tilkynnti hann að hann myndi láta af störfum í stjórn félagsins á þessum fundi, þar sem lög félagsins heimila aðeins 6 ára samfellda setu í stjórn.
Afkoma félagsins var lítið eitt verri en undanfarin ár, er það einkum vegna lækkunar á styrkjum til félagsins. Félagið hefur kostað miklum fjármunum á síðustu tveimur árum í rekstur erinda vegna samskipta við MAST.
Kosið var í stjórn og þar sem Guðmundur Jón Guðmundsson hefur lokið sínum tveimur kjörtímabilum, var kosinn nýr aðili í stjórn, til þriggja ára. Það var Þorgrímur Einar Guðbjartsson sem var einróma kjörinn í stjórn.
Tvær bókanir voru samþykktar á fundinum, svo hljóðandi og upp bornar af Matthíasi Lýðssyni frá Húsavík á Ströndum:
Aðalfundur Beint frá býli þakkar íslenskum neytendum frábærar móttökur á vörum félagsmanna Beint frá býli á undanförnum árum. Með ykkar stuðningi getum við félagar í Bfb haldið áfram að framleiða hágæða vörur úr íslensku hráefni.
Aðalfundur Beint frá býli haldinn að Hraunsnefi 16.4. 2016 skorar á Alþingi að margfalda framlög til byggðamála m.a. til að bæta samgöngur hvort heldur er á vegum eða á netinu. Með því virkjum við kraft, kjark og hugmyndaauðgi íbúa landsbyggðarinnar til virðisauka fyrir alla Íslendinga.
Voru báðar þessar tillögur einróma samþykktar.
Í fundarlok voru Guðmundi Jóni Guðmundssyni færðar þakkir fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið allt frá stofnun þess og óskar fundurinn honum velfarnaðar í þeim störfum sem hann nú tekur sér fyrir hendur.
Á stjórnarfundi Beint frá býli sem haldinn var strax að afloknum aðalfundi, skipti stjórn með sér verkum þannig: Formaður: Þorgrímur Einar; ritari Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir og gjaldkeri Hanna Kjartansdóttir.
Fréttatilkynning