Áskorun vegna gáma og lélegra bygginga
Á heimasíðu Húnavatnshrepps var nýlega birt eftirfarandi áskorun til íbúa sveitarfélagsins, sem samþykkt hafði verið af skipulag-bygginga og umhverfisnefnd sveitarfélagsins.
„Skipulags- og bygginga- og umhverfisnefnd bendir á mikinn fjölda gáma án leyfis víðsvegar í sveitarfélaginu. Nefndin skorar á eigendur að ganga frá þessum eigum sínum á löglegan hátt eða farga þeim ella. Sama á við um byggingar í lélegu ástandi.“ /KSE