Ásmundur Einar hyggst taka slaginn í Reykjavík norður

Ásmundur Einar Daðason. MYND: ALÞINGI.IS
Ásmundur Einar Daðason. MYND: ALÞINGI.IS

Það eru sviptingar hjá Framsóknarmönnum í Norðvesturkjördæmi. Um áramótin lá, að því er virtist, ljóst fyrir að Halla Signý Kristjánsdóttir frá Bolungarvík og Króksarinn Stefán Vagn Stefánsson myndu bítast um annað sæti á lista Framsóknar í komandi póstkosningum. Það var því ekki sótt að ráðherranum Ásmundi Einari Daðasyni sem skipaði efsta sæti listans í síðustu kosningum og því allt útlit fyrir að hann gengi að sætinu vísu. Nú hefur Ásmundur Einar hins vegar lýst því yfir að hann muni gefa kost á sér í Reykjavík norður sem sannarlega er óvænt flétta.

Framsóknarflokkurinn hefur tvö þingsæti í Norðvesturkjördæmi og á óvíða sterkara fylgi. Flokkurinn náði aftur á móti ekki inn manni í Reykjavík norður í síðustu kosningum þannig að það er ljóst að Ásmundur tekur talsverða áhættu með þessu útspili.

Það má því leiða að því líkum, svo fremi sem ekkert fleira óvænt gerist, að Halla Signý og Stefán Vagn muni berjast um efsta sætið á lista Framsóknar fyrir komandi kosningar.

Tilkynning Ásmundar Einars, sem hann birti á Facebook nú seinni partinn, er svohljóðandi:

„Kæru vinir.

Að vel ígrunduðu máli hef ég ákveðið að gefa kost á mér til forystu á framboðslista Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður í næstu Alþingiskosningum.

Það kann að virðast sérstök ákvörðun að fara úr því sem næst öruggu þingsæti í Norðvesturkjördæmi, þar sem Framsókn á sér langa og farsæla sögu, í framboð þar sem flokkurinn hefur glímt við ýmsar áskoranir í undanförnum kosningum. Að baki þessari ákvörðun liggur metnaður til að náfram stórum pólitískum breytingum í íslensku samfélagi.

Á undanförnum árum hef ég lært enn betur mikilvægi þess að fylgja hjartanu í leik og starfi. Það var af þeirri ástæðu sem ég ákvað í upphafi þessa kjörtímabils að leggja allt undir og berjast fyrir stórum kerfisbreytingum í málefnum barna og barnafjölskyldna, róttækum aðgerðum fyrir ungt og tekjulágt fólk á húsnæðismarkaði ásamt fleiri málum. Þessi vinna og þessar aðgerðir undirstrika mikilvægi þess að við breytum forgangsröðun í íslenskum stjórnmálum.

Nú finn ég innra með mér mikinn metnað til að fylgja eftir þessum stóru kerfisbreytingum en ekki hvað síst að á þessum grunni verði stigin miklu stærri og víðtækari skref í að tryggja aukin tækifæri fyrir alla í íslensku samfélagi. Með skýrri og róttækri framtíðarsýn, vinnusemi og samvinnu þá trúi ég því að Framsókn hafi alla möguleika á að verða leiðandi afl í þessu efni. Það gerist hins vegar ekki nema flokkurinn nái að styrkja sig í þéttbýli og þá sérstaklega í Reykjavík.

Þetta verður áskorun en ég trúi á breytingar og það er ástæða þess að ég er tilbúinn að leggja allt undir. Í baráttunni fram undan hlakka ég til að vinna með góðu fólki í Reykjavík og þá sérstaklega með Lilju Alfreðsdóttur, okkar öfluga Mennta- og menningarmálaráðherra.

Við vini mína, stuðningsmenn og kjósendur Framsóknar í Norðvesturkjördæmi vil ég segja að þetta var mjög erfið ákvörðun. Það auðveldar hana hins vegar að hafa fengið að sjá og heyra af öllu því öfluga fólki sem er tilbúið til að starfa með Framsókn um allt Norðvesturkjördæmi. Nú hvet ég ykkur öll til að nýta tækifærið, stíga skrefið og gefa kost á ykkur til forystu í kjördæminu. Ykkar og okkar er framtíðin. Við þurfum Framsókn í íslenskt samfélag!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir