Átak til sundiðkunar

Síðustu tvær vikurnar í febrúar býður Íþróttamiðstöðin á Blönduósi börnum að 18 ára aldri frítt í sund síðustu tvær vikurnar í febrúar eða frá og með 15. febrúar og til og með 28. febrúar. Með þessu er ætlunin að hvetja börnin til að koma oftar í sund og nýta sér betur þá góðu aðstöðu sem er til staðar.

Í tilkynningu frá Íþróttamiðstöðinni eru foreldrar hvattir til að taka þátt í átakinu með því að mæta með börnunum eða hvetja þau til sundiðkunar. Jafnframt kemur fram að föstudaginn 21. febrúar frá klukkan 20:00 til 22:00 verður 7. - 10. bekk í Blönduskóla boðið í diskósund í samstarfi við félagsmiðstöðina Skjólið.

Fleiri fréttir