Athugasemdir við rekstrarniðurstöðu Skagastrandar
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent Sveitarfélaginu Skagaströnd bréf þar sem gerð er athugasemd við niðurstöðu rekstrarreiknings sveitarfélagsins árið 2014 en niðurstaða A hluta var neikvæð um 37,9 milljónir króna og niðurstaða A og B hluta var neikvæð um 18,8 milljónir króna.
Eftirlitsnefndin óskar eftir skýringum sveitarstjórnar á frávikum í rekstri samstæðu sveitarsjóðs árið 2014. Einnig óskar nefndin eftir gerð útkomuspár fyrir árið 2015 með samanburði við fjárhagsáætlun ársins 2015. Bréf frá nefndinni var lagt fram á fundi sveitarstjórnar 2. september síðastliðinn og var ákveðið að fela sveitarstjóra að vinna greinargerð í samræmi við óskir eftirlitsnefndarinnar sem lögð yrði fyrir sveitarstjórn.
Eftirlitsnefnd hefur það hlutverk að fylgjast með reikningsskilum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga og að hafa eftirlit með því að fjárstjórn sveitarfélaga sé í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Leiði athugun nefndarinnar í ljós að afkoma sveitarfélags sé ekki í samræmi við ákvæði laganna eða fjármál sveitarfélagsins stefni að öðru leyti í óefni, skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarstjórn og kalla eftir skýringum. Í slíkum tilvikum er sveitarstjórn skylt að gera eftirlitsnefndinni, innan tveggja mánaða, grein fyrir hvernig hún hyggst bregðast við aðvörun nefndarinnar.