Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands. Laugardaginn 25. júní 2016 í umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra verður sem hér segir:

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins frá og með 2. maí 2016, sem hér segir:

Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 10-15.

Sauðárkróki, aðalskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 10-15.

Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir í samráði við viðkomandi hreppstjóra:

Hvammstanga, hjá Guðrúnu Ragnarsdóttur, skipuðum hreppstjóra, s. 893 7700

a. Skrifstofu sveitarfélagsins Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga

b. Bakkatúni 2, Hvammastanga

Sveitarfélaginu Skagaströnd, hjá Lárusi Ægi Guðmundssyni, skipuðum hreppstjóra, s. 864 7444

a. Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd

b. Hólabraut 24, 545 Skagaströnd

Sveitarfélaginu Skagafirði, hjá Ásdísi Garðarsdóttur, skipuðum hreppstjóra, s. 848 8328

a. Kirkjugötu 19, 565 Hofsósi

b. Grunnskólanum að Hólum í Hjaltadal.

Fimmtudagana 16. og 23. júní verður opið til kl. 19 í aðalskrifstofunni á Blönduósi og sýsluskrifstofunni á Sauðárkróki.

Á kjördag verða aðalskrifstofan á Blönduósi og sýsluskrifstofan á Sauðárkróki opnar frá kl. 16 til 18.

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublaði eigi síðar en mánudaginn 20. júní 2016.

Það skal tekið sérstaklega fram að hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins.

Blönduósi 31. maí 2016

Bjarni Stefánsson, sýslumaður.

Fleiri fréttir